Fotbolti.net
21.11.26 - 23:40
Ívan Guðjón Baldursson

Glasner: Eigum í vandræðum með líkamlegu hliðina

Glasner: Eigum í vandræðum með líkamlegu hliðina
Canon

Mynd: EPA

Oliver Glasner þjálfari Nottingham Forest var svekktur eftir tap gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag, eftir að lærlingar hans unnu óvænt gegn Manchester City í síðasta leik fyrir landsleikjahlé.
England: Átján ára leikmaður Tottenham fór á kostum - Chelsea fékk skell á heimavelli
TENGT EFNI

England: Átján ára leikmaður Tottenham fór á kostum - Chelsea fékk skell á heimavelli

Glasner líður eins og leikmennirnir sínir eigi í erfiðleikum með að halda líkamlega í við andstæðinga sína í úrvalsdeildinni og segir að liðið þurfi að bæta sinn leik sem fyrst.

„Við eigum í vandræðum með líkamlegu hliðina, við erum ekki að ráða við ákefðina og kraftinn sem andstæðingarnir okkar eru með. Við verðum að bæta okkur því við erum ekki langt frá því að keppa við öll þessi lið," sagði Glasner.

„Við spiluðum ekki illa í dag en við héldum áfram að klúðra færum og gefa ódýr mörk sem við fáum á okkur eftir mistök. Mistök í varnarlínunni geta verið mjög dýr í þessari deild þar sem andstæðingarnir búa alltaf yfir gæðunum sem þarf til að refsa með marki.

„Við verðum að samþykkja að Bournemouth vann þennan leik út af þeir voru aðeins betri á tímapunktunum sem skiptu máli. Við refsuðum ekki þegar við fengum tækifærin til þess, en andstæðingarnir gerðu það."


Forest er með 9 stig eftir 11 umferðir, aðeins einu stigi fyrir ofan Manchester United sem situr í fallsæti.

„Við töpum boltanum í báðum mörkunum sem við fengum á okkur í dag. Við gáfum þeim þessi mörk og það er sárt, sérstaklega í ljósi stöðunnar sem við erum í á stöðutöflunni. Vandamálið í dag er að við gerðum of mikið af mistökum sem Bournemouth nýtti sér."
Glasner: Eigum í vandræðum með líkamlegu hliðina
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton10+1922
3Man City11+822
4Liverpool10+418
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Aston Villa11-314
12Newcastle11-313
13Coventry11-812
14Hull City10011
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd10-58
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.