Fotbolti.net
22.11.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Á flugi eftir erfiða byrjun - Níundi sigurinn í röð

Á flugi eftir erfiða byrjun - Níundi sigurinn í röð
Canon

Mynd: EPA

Marco Rose byrjaði ekki vel við stjórnvölinn hjá Bournemouth. Liðið náði aðeins í þrjú stig úr fyrstu sex umferðunum í ensku úrvalsdeildinni og kallaði Rose eftir því að menn stigu upp og tæku ábyrgð eftir stórt tap gegn Chelsea í október.
England: Átján ára leikmaður Tottenham fór á kostum - Chelsea fékk skell á heimavelli
TENGT EFNI

England: Átján ára leikmaður Tottenham fór á kostum - Chelsea fékk skell á heimavelli

Lærlingar hans hlustuðu heldur betur á skilaboðin og hafa unnið hvern einasta leik eftir skellinn sem þeir fengu gegn Chelsea. Bournemouth lagði Nottingham Forest að velli í gær og var það níundi sigur liðsins í röð í öllum keppnum.

„Við erum ekki að hugsa um einhver met, við erum bara að hugsa um næsta leik hverju sinni. Við vissum að þetta yrði erfiður leikur í dag og að við þyrftum að sýna þolinmæði til að vinna. Þetta var frábær frammistaða og við áttum skilið að fara með sigur af hólmi," sagði Rose.

Bournemouth bætti eigið úrvalsdeildarmet með sigrinum gegn Forest, þar sem það var í fyrsta sinn sem liðið vinnur fimm úrvalsdeildarleiki í röð. Liðið er komið með 18 stig eftir 11 umferðir og situr í fjórða sæti sem stendur.

„Ég mun sofna með bros á vör í nótt, ekki út af stöðutöflunni heldur út af sigrinum. Það er mikilvægt að halda fótunum á jörðinni."
Á flugi eftir erfiða byrjun - Níundi sigurinn í röð
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton10+1922
3Man City11+822
4Liverpool10+418
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Aston Villa11-314
12Newcastle11-313
13Coventry11-812
14Hull City10011
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd10-58
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.