21.11.26 - 20:55
Ívan Guðjón Baldursson
Arteta svekktur: Tvö töpuð stig

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Mikel Arteta var svekktur eftir jafntefli sem Englandsmeistarar Arsenal gerðu á útivelli gegn Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í dag.

TENGT EFNI
England: Madueke bjargaði stigi fyrir meistarana
Lærlingar Arteta verma áfram toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar en Brighton fær tækifæri til að minnka bilið niður í þrjú stig með sigri gegn nýliðum Hull City á morgun.
Arsenal var talsvert sterkara liðið í fyrri hálfleiknum í Newcastle og var með eins marks forystu þegar flautað var til leikhlés. Heimamenn mættu til leiks af fullum krafti í síðari hálfleik og sá Arsenal varla til sólar. Newcastle jafnaði og náði svo forystunni áður en Noni Madueke bjargaði jafntefli á 78. mínútu.
„Mér líður eins og við höfum tapað tveimur stigum í dag. Við vorum stórkostlegir í fyrri hálfleik og áttum að vera 2-0, 3-0 eða 4-0 yfir, en við nýttum ekki færin. Í leikhlé töluðum við um að spila enn betur út af við bjuggumst við sterkum viðbrögðum frá andstæðingunum, sem við fengum svo sannarlega að sjá en strákarnir réðu ekki við þá," sagði Arteta.
„Við vorum langt frá því að vera nægilega góðir og þeir öðluðust sífellt meira sjálfstraust. Við gáfum þeim þetta sjálfstraust með því að gefa þeim jöfnunarmarkið eftir misheppnað innkast og þeir eru mjög sterkir líkamlega og öflugir í föstum leikatriðum, svo þeir náðu forystunni úr einu slíku og þá var komið að okkur að bregðast við.
„Strákarnir brugðust mjög vel við og stjórnuðu ferðinni síðustu 25 mínúturnar (með uppbótartíma) en við náðum ekki að sigra. Við komumst í svo mikið af góðum stöðum en það vantaði að taka rétta ákvörðun og vera nægilega nákvæmir í lokasendingunni."
Arsenal á gífurlega spennandi heimaleiki næstu vikuna, liðið mætir Borussia Dortmund í Meistaradeildinni á þriðjudag og Manchester City í úrvalsdeildinni á sunnudag.
Þeim fylgja svo erfiðir leikir við Brentford, Tottenham, Real Madrid, Bournemouth og Manchester United.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 11 | +10 | 28 |
| 2 | Brighton | 10 | +19 | 22 |
| 3 | Man City | 11 | +8 | 22 |
| 4 | Liverpool | 10 | +4 | 18 |
| 5 | Bournemouth | 11 | +4 | 18 |
| 6 | Leeds | 11 | +5 | 17 |
| 7 | Everton | 10 | +2 | 16 |
| 8 | Chelsea | 11 | 0 | 16 |
| 9 | Tottenham | 11 | +1 | 15 |
| 10 | Brentford | 10 | +5 | 14 |
| 11 | Aston Villa | 11 | -3 | 14 |
| 12 | Newcastle | 11 | -3 | 13 |
| 13 | Coventry | 11 | -8 | 12 |
| 14 | Hull City | 10 | 0 | 11 |
| 15 | Fulham | 11 | -2 | 11 |
| 16 | Ipswich Town | 11 | -7 | 11 |
| 17 | Nott. Forest | 11 | -6 | 9 |
| 18 | Sunderland | 11 | -9 | 9 |
| 19 | Man Utd | 10 | -5 | 8 |
| 20 | Crystal Palace | 11 | -15 | 7 |