21.11.26 - 11:59
Brynjar Ingi Erluson
Þjálfarar stórliða pirraðir yfir GTA 6

Grand Theft Auto 6 kom út á fimmtudag

Mynd: Rockstar Games

Gattuso segist ekki hafa hugmynd um hvað GTA sé

Mynd: EPA

Grand Theft Auto 6 kom út á fimmtudag

Mynd: Rockstar Games
Tölvuleikurinn Grand Theft Auto 6 kom út á fimmtudag eftir gríðarlega eftirvæntingu, en það voru ekki allir jafn spenntir fyrir útgáfunni. Samkvæmt spænska miðlinum Sport hafa margir þjálfarar stórliða verulegar áhyggjur af áhrifum leiksins á sína menn.

TENGT EFNI
De Zerbi: Ég mun fara inn á herbergin og rústa GTA ásamt öllu öðru
GTA er ein vinsælasta tölvuleikjasería allra tíma og vinsældirnar leyndu sér ekki þegar GTA 6 kom loksins út. Alls seldust 32,5 milljónir eintaka á fyrsta sólarhringnum.
Margir atvinnumenn höfðu beðið óþreyjufullir eftir leiknum, en þjálfarar óttast nú að leikmenn sökkvi sér svo mikið í hann að það komi niður á frammistöðu þeirra á vellinum.
Samkvæmt Sport snúast áhyggjurnar fyrst og fremst um að leikmenn vaki langt fram eftir við tölvuna, fái ekki nægan svefn og verði þar af leiðandi í meiri meiðslahættu.
Margir þjálfarar hafa verið spurðir út í leikinn og möguleg áhrif hans á leikmenn. Flestir hafa tekið þessu með léttu gríni, þótt sumir hafi vissulega áhyggjur.
Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, tók málinu þó með léttu gríni og sagðist ætla að fara sjálfur inn á herbergi leikmanna og rústa bæði leiknum og tölvunni ef þeir ætluðu sér að vaka fram eftir við spilamennskuna.
Gennaro Ivan Gattuso, þjálfari Alberts Guðmundssonar hjá Lazio, sagðist hins vegar vera drullusama þótt leikmenn hans spiluðu GTA 6. Hann hefði raunar ekki hugmynd um hvaða leikur þetta væri, en myndi fljótt sjá á leikmönnum sínum ef þeir væru ekki að sofa nóg.
Niko Kovac, þjálfari Borussia Dortmund, var einnig spurður út í málið og varaði sína menn við því að láta tölvuleikinn trufla svefninn.
Áhyggjurnar eru ekki síst vegna þess að fram undan er þétt leikjadagskrá í Evrópuboltanum og því skiptir miklu máli að leikmenn sofi vel og nái að hvíla sig á milli leikja.