Guehi vill fara til Liverpool - Viðræður við Gordon ganga illa - Man Utd skoðar stjóra
   sun 19. september 2021 13:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið ÍA og Fylkis: Leikur upp á líf og dauða
Rúnar Páll stillir bara upp í sama lið og síðast.
Rúnar Páll stillir bara upp í sama lið og síðast.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor kemur inn í lið Skagamanna.
Viktor kemur inn í lið Skagamanna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er svo sannarlega hægt að segja að það sé barist upp á líf og dauða þegar ÍA og Fylkir eigast við í Pepsi Max-deildinni eftir rétt tæplega klukkutíma.

Þessi leikur er í næst síðustu umferðinni og fyrir hann eru bæði þessi lið í fallsæti. Það fer hver að verða síðastur að tryggja sér áframhaldandi veru í deildinni.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu!

Byrjunarliðin eru klár. Bæði þessi lið voru að spila í átta-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í síðustu viku. ÍA vann 3-1 sigur á ÍR. Frá þeim leik gerir Jóhannes Karl Guðjónsson fjórar breytingar. Þórður Þorsteinn Þórðarson, sem skoraði frábært mark gegn ÍR, er ekki með í dag. Wout Droste, Sindri Snær Magnússon, Viktor Jónsson og Steinar Þorsteinsson koma inn í liðið fyrir Þórð, Ólaf Val Valdimarsson, Brynjar Snæ Pálsson og Eyþór Aron Wöhler.

Ragnar Sigurðsson hefur verið frá vegna meiðsla hjá Fylki en hann byrjar á bekknum. Rúnar Páll Sigmundsson stillir upp sama liði og gegn Víkingi. Sá leikur fór í framlengingu þar sem Víkingar höfðu betur.

Byrjunarlið ÍA:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
3. Óttar Bjarni Guðmundsson (f)
4. Aron Kristófer Lárusson
5. Wout Droste
7. Sindri Snær Magnússon
9. Viktor Jónsson
10. Steinar Þorsteinsson
17. Gísli Laxdal Unnarsson
19. Ísak Snær Þorvaldsson
22. Hákon Ingi Jónsson
44. Alex Davey

Byrjunarlið Fylkis:
1. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
3. Unnar Steinn Ingvarsson
4. Arnór Gauti Jónsson
5. Orri Sveinn Stefánsson
7. Daði Ólafsson
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f)
9. Jordan Brown
10. Orri Hrafn Kjartansson
14. Þórður Gunnar Hafþórsson
22. Dagur Dan Þórhallsson
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner