Fotbolti.net
19.09.26 - 19:22
Helgi Inguson

Aron Snær: Þetta var eins og í draumi

Auglýsing
Aron fagnar marki sínu

Aron fagnar marki sínu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
„Mér líður frábærlega, þetta er alveg einstakt," sagði Aron Snær Ingason, hetja Þróttar, eftir sigur gegn Fylki í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 0 Fylkir
„Mér fannst við betri eiginlega allan leikinn. Þeir leyfðu okkur að hafa boltann og við vissum að markið myndi loksins koma og við fáum náttúrulega ekki á okkur mark."

Baldur Hannes, fyrirliða Þróttar, talaði um það í blaðamannafundinum fyrir leik að liðið væri yfirvegað og virkilega spennt fyrir leiknum. Aron Snær var sammála ummælum hans.

„Maður var smá stressaður rétt fyrir leik en út alla vikuna var aðallega spenningur. Við vorum reynslunni ríkari frá því í fyrra, töpuðum þar í úrslitaleik gegn Þór."

Aron skoraði eina mark leiksins og segir tilfinninga vera einstaka.

„Tryggvi gefur hann bara á mig og ég tæklaði boltann og sá hann inni. Síðan knee-slidaði ég fyrir framan þetta fólk, þetta var eins og í draumi."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.