19.09.26 - 21:30
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deildin: Dýrmætur og sannfærandi sigur í Akureyrarslagnum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA 3 - 0 Þór
1-0 Jakob Snær Árnason ('66)
2-0 Birgir Baldvinsson ('72)
3-0 Adam Ægir Pálsson ('83)
1-0 Jakob Snær Árnason ('66)
2-0 Birgir Baldvinsson ('72)
3-0 Adam Ægir Pálsson ('83)
Lestu um leikinn: KA 3 - 0 Þór
KA og Þór áttust við í gríðarlega mikilvægum slag í fallbaráttu Bestu deildar karla.
Aðeins eitt stig skildi að á milli Akureyrarliðanna í botnbaráttunni og var staðan markalaus eftir fjörugan fyrri hálfleik á Greifavellinum.
KA-menn fengu bestu færin, þeir hæfðu stöngina og slána og fengu góð færi en tókst ekki að skora. Að sama skapi var Jeppe Pedersen heppinn að vera ekki rekinn af velli með tvö gul spjöld í fyrri hálfleik og fékk Daninn skiptingu í leikhlé.
Þórsarar áttu ekki góðan fyrri hálfleik og byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti, en fengu mark í bakið frá Jakobi Snæ Árnasyni. Jakob var skilinn eftir einn á auðum sjó með boltann fyrir utan teig og skoraði með hnitmiðuðu skoti meðfram jörðinni sem fór í stöngina og inn.
Sex mínútum síðar tvöfaldaði Birgir Baldvinsson forystuna með skalla eftir hornspyrnu og innsiglaði Adam Ægir Pálsson sigurinn á 83. mínútu eftir góðan undirbúning frá Guðjóni Erni Hrafnkelssyni.
KA-menn nýttu færin sín í síðari hálfleik og áttu Þórsarar engin svör, svo lokatölur urðu 3-0. KA hefði getað bætt marki við í uppbótartíma en tókst ekki.
KA klifrar upp úr fallsæti með þessum sigri og eru þeir gulklæddu með 23 stig eftir 24 umferðir. Þeir eru tveimur stigum fyrir ofan Þór sem dettur niður í fallsæti.