19.09.26 - 13:36
Brynjar Ingi Erluson
England: Manzambi allt í öllu í fyrsta sigri Villa - Tottenham í fallsæti

Manzambi skoraði og lagði upp

Mynd: EPA

Emi Buendía skoraði frábært mark fyrir utan teig

Mynd: EPA

Pedro Porro meiddist snemma leiks

Mynd: EPA

Manzambi skoraði og lagði upp

Mynd: EPA
Tottenham 2 - 3 Aston Villa
0-1 Johan Manzambi ('45 )
0-2 Nicolas Jackson ('67 )
0-3 Emiliano Buendia ('79 )
1-3 Conor Gallagher ('86 )
2-3 Jan Paul van Hecke ('90 )
0-1 Johan Manzambi ('45 )
0-2 Nicolas Jackson ('67 )
0-3 Emiliano Buendia ('79 )
1-3 Conor Gallagher ('86 )
2-3 Jan Paul van Hecke ('90 )
Aston Villa vann sinn fyrsta deildarsigur á tímabilinu þegar liðið lagði Tottenham, 3-2, í 5. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í Lundúnum í dag.
Mikil vandræði hafa verið hjá báðum liðum í upphafi tímabilsins. Hvorugt þeirra hafði unnið leik í deildinni fyrir daginn, Villa hafði aðeins skorað eitt mark og Tottenham var enn án marks.
Savio fékk tvö færi til að skora á nokkrum sekúndum á 10. mínútu. Fyrra skotið varði Zion Suzuki og Savio fékk síðan frákastið en aftur varði sá japanski.
Níu mínútum síðar urðu heimamenn fyrir áfalli þegar spænski bakvörðurinn Pedro Porro þurfti að fara af velli vegna meiðsla og kom Archie Gray inn í hans stað.
Tottenham hélt áfram að ógna en Suzuki var vel á verði. Villa vann sig síðan betur inn í leikinn og komst yfir undir lok fyrri hálfleiks.
Boubacar Kamara fékk boltann inn á teiginn og kom honum á Johan Manzambi sem skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið. Markið kom á meðan Micky van de Ven var utan vallar eftir að hafa fengið högg í andlitið og nýttu Villa-menn sér liðsmuninn.
Tottenham fór illa með færin eins og svo oft áður á tímabilinu og Villa leiddi því 1-0 í hálfleik.
Lundúnaliðið taldi sig hafa skorað sitt fyrsta deildarmark á tímabilinu á 60. mínútu þegar Ganamaðurinn Mohammed Kudus setti boltann í netið. VAR tók markið hins vegar af þar sem Andy Robertson var rangstæður í aðdragandanum.
Nokkrum mínútum síðar fékk Tottenham svo blauta tusku í andlitið þegar Nicolas Jackson tvöfaldaði forystu Villa. Suzuki sendi langan bolta fram völlinn á Manzambi sem fann Jackson og hann skoraði með góðu skoti.
Varnarleikur Tottenham var afleitur í markinu enda fékk langi boltinn frá Suzuki að skoppa án þess að heimamenn næðu að bregðast við.
Martröðin hélt síðan áfram þegar Argentínumaðurinn Emi Buendía bætti við þriðja hjá Villa með glæsilegu skoti. John McGinn var með boltann hægra megin við teiginn og sendi hann út á Buendía sem klíndi honum upp í samskeytin vinstra megin. Antonin Kinsky átti aldrei möguleika.
Það jákvæða fyrir Tottenham var þó að liðinu tókst loksins að skora sitt fyrsta deildarmark á tímabilinu. Kudus fór upp að endamörkum og kom boltanum inn á varamanninn Conor Gallagher sem náði að koma honum af Matty Cash og í netið.
Á síðustu sekúndunum kom annað mark liðsins. Jan Paul van Hecke stangaði þá aukaspyrnu James Maddison í netið, en það kom aðeins of seint og lokatölur 3-2 Villa í vil.
Tottenham tekur því vandræði síðustu tímabila með sér inn í það nýja og er í fallsæti með aðeins tvö stig eftir fimm leiki. Villa vann hins vegar sinn fyrsta leik og er komið með fjögur stig í 15. sæti.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 5 | +7 | 13 |
| 2 | Man City | 4 | +6 | 12 |
| 3 | Brentford | 5 | +6 | 9 |
| 4 | Brighton | 5 | +8 | 8 |
| 5 | Leeds | 4 | +4 | 8 |
| 6 | Hull City | 5 | +1 | 8 |
| 7 | Newcastle | 5 | +1 | 8 |
| 8 | Everton | 5 | +2 | 7 |
| 9 | Chelsea | 5 | -2 | 7 |
| 10 | Ipswich Town | 5 | -3 | 7 |
| 11 | Liverpool | 4 | +2 | 6 |
| 12 | Nott. Forest | 4 | 0 | 5 |
| 13 | Man Utd | 4 | 0 | 4 |
| 14 | Sunderland | 4 | -2 | 4 |
| 15 | Aston Villa | 5 | -5 | 4 |
| 16 | Bournemouth | 4 | -1 | 3 |
| 17 | Crystal Palace | 4 | -5 | 3 |
| 18 | Tottenham | 5 | -6 | 2 |
| 19 | Fulham | 4 | -3 | 1 |
| 20 | Coventry | 4 | -10 | 0 |