19.09.26 - 12:07
Brynjar Ingi Erluson
„Gat þessi krakkaskítur hjá Barcelona ekki bara haldið kjafti?“

Michael Olise og Harry Kane

Mynd: EPA

Michael Olise og Harry Kane

Mynd: EPA
Þýska félagið Union Berlín fór á kostum á samfélagsmiðlinum X eftir 7-0 skellinn gegn Bayern München í þýsku deildinni í gær.

TENGT EFNI
Þýskaland: Olise með þrennu í sjö marka sigri
Franski vængmaðurinn Michael Olise fór hamförum með þrennu og stoðsendingu í sigrinum og þá skoraði Harry Kane tvö mörk. Báðir eru tilnefndir til Ballon d'Or-verðlaunanna.
Lamine Yamal, leikmaður Barcelona, er einnig á meðal þeirra sem koma til greina en hann hefur verið áberandi í fréttum síðustu daga og látið í ljós þá skoðun að hans tími sé kominn til að verða valinn besti leikmaður heims.
Olise og Kane halda hins vegar áfram að sýna sínar bestu hliðar og eru báðir að eltast við Gullboltann. Ummæli Yamal síðustu daga hafa ekki farið fram hjá öðrum og Union sló upp léttu gríni á X í kjölfarið.
„Gat þessi 19 ára krakkaskítur hjá Barcelona ekki bara haldið kjafti? Kane og Olise verið á eldi í dag og sýna að þeir eru klárlega efni í að vinna Ballon d'Or verðlaunin,“ skrifaði sá sem stýrir samfélagsmiðlum Union.

Hätte dieser 19-jährige Lausbub aus Barcelona nicht einfach seinen Mund halten können? Kane und Olise sind heute richtig on fire und beweisen, dass sie Ballon-d'-Or-Material sind.#FCBFCU | 7:0 | 77'
— 1. FC Union Berlin (@fcunion) September 18, 2026