Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 19. október 2020 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Declan Rice svaraði stuðningsmanni Tottenham
Declan Rice lék allan tímann í ótrúlegri rimmu West Ham United gegn Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Tottenham komst í þriggja marka forystu á fyrsta stundarfjórðungi leiksins en Hamrarnir náðu að koma til baka með þremur mörkum á lokakaflanum.

Í stöðunni 3-0 var velsku stórstjörnunni Gareth Bale skipt inn í lið Tottenham og fimm mínútum síðar fékk Manuel Lanzini að spreyta sig í liði gestanna. Stuðningsmanni Tottenham fannst gæðamunurinn skoplegur og tjáði sig um það á Twitter.

„Við setjum Bale inná, West Ham setur Lanzini inná :') :') :') :')" skrifaði stuðningsmaðurinn.

Fimm mínútum eftir innkomu Lanzini hófst endurkoma gestanna og lauk henni á 94. mínútu, þegar Lanzini sjálfur gerði stórkostlegt jöfnunarmark með frábæru skoti utan teigs sem fór í slánna, stöngina og inn.

Declan Rice fann ummæli stuðningsmannsins og vakti athygli á þeim með einföldu svari.




Athugasemdir
banner
banner