Wigan 1 - 2 Sheffield Utd
0-1 John Egan ('8 )
0-2 Billy Sharp ('56 )
1-2 Nathan Broadhead ('65 )
0-1 John Egan ('8 )
0-2 Billy Sharp ('56 )
1-2 Nathan Broadhead ('65 )
Sheffield United lagði Wigan að velli, 2-1, í ensku B-deildinni í kvöld en þetta var þriðji sigur United í röð.
Varnarmaðurinn John Egan kom United yfir með góðu skallamarki á 8. mínútu leiksins áður en Billy Sharp tvöfaldaði forystuna með góðu skoti á 56. mínútu.
Nathan Broadhead kom Wigan inn í leikinn níu mínútum síðar og var Wigan oft nálægt því að jafna leikinn en United hélt út og þriðji sigurinn staðreynd.
Þetta var þá fyrsta tap Wigan undir stjórn Kolo Toure en hann tók við liðinu fyrr í þessum mánuði.
Sheffield United er í 2. sæti með 44 stig, fimm stiga forystu á Blackburn Rovers sem er í þriðja sætinu. Wigan er á meðan í 23. sæti með 24 stig.
Athugasemdir