Fotbolti.net
20.03.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Brynjar Björn til Stoke á láni (Staðfest)

Brynjar Björn í baráttunni með íslenska landsliðinu gegn Skotum.

Brynjar Björn í baráttunni með íslenska landsliðinu gegn Skotum.

Canon
Stoke City hefur fengið Brynjar Björn Gunnarsson að láni frá Nottingham Forrest í einn mánuð. Brynjar Björn sem að er 28 ára yfirgaf herbúðir Stoke á síðasta tímabili eftir um fjögurra ára veru hjá félaginu og samdi kappinn við Nottingham Forrest en hann gekk til liðs við Stoke árið 1999 frá sænska liðinu Örgryte á 600 þúsund pund. Þar hefur honum hinsvegar gengið illa að komast í liðið og því hefur hann ákveðið að fara á láni til Stoke. Þetta er reyndar önnur tilraun Stoke til að krækja í kappann en eins og við greindum frá fyrir skömmu þá hafnaði Nottingham Forrest lántilboði í Brynjar.
John Rudge hjá Stoke segir að félagið hafi fengið Brynjar til að byrja með á eins mánaðar láni til að hann geti leikið með liðinu um helgina en hann bætti við að félagið vonist til að semja við Nottingham um að fá Brynjar að láni út tímabilið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.