Fotbolti.net
20.04.04 - 00:00
Elvar Geir Magnússon

Hjörvar Hafliðason í KR (Staðfest)

Hjörvar Hafliðason í KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Merki

Markvörðurinn Hjörvar Hafliðason fékk í dag félagaskipti yfir til Íslandsmeistara KR en hann hefur leikið með Val undanfarin ár. Hjörvar er fæddur 1980 og kom til Vals frá HK árið 1999. Hann hefur verið í herbúðum Hlíðarendaliðsins síðan en hann missti nær alveg af tímabilunum 2001 og 2003 vegna alvarlegra hnjámeiðsla.
Hann mun verða varamarkvörður KR fyrir Kristján Finnbogason landsliðsmann. Valþór Halldórsson sem var varamarkvörður Vesturbæinga í fyrra er kominn í Hauka en hann gekk til liðs við þá í nóvember.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.