Ed Woodward, stjórnarformaður Manchester United, sagði af sér í kvöld eftir tíðindi dagsins. United var eitt félaganna sem ætlaði sér að hefja þátttöku í Ofurdeildinni.
Ekkert stefnir í að sú deild fari af stað þar sem Chelsea og Manchester City hafa hætt við áform sín um að taka þátt í slíkri deild.
Þessari deild var mikið mótmælt og einungis örfáir ánægðir með þessi áform. Leikmenn United mótmæltu áformunum og talað um að Luke Shaw og Harry Maguire hafi látið hæst í sér heyra.

Woodward er ekki einn af mönnunum sem hætta í sinni stöðu því á Ítalíu er greint frá því að Andrea Agnelli, forseti Juventus, sé búinn að segja af sér.
Þetta eru óstaðfestar fréttir en ítalskir miðlar hafa verið að greina frá þessu á undanförnum mínútum.
There’s still nothing confirmed by Juventus side about president Andrea Agnelli resigning rumours, at the moment. He’s also the vicechairman of the #SuperLeague. 🚨🇮🇹 #Juventus
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) April 20, 2021
Athugasemdir