Fotbolti.net
20.04.23 - 22:13
Kári Snorrason

Kári Jónasson: Betri frammistaða í seinni hálfleik frekar en í þeim fyrri hjá okkur í dag

Auglýsing
Kári Jónasson: Betri frammistaða í seinni hálfleik frekar en í þeim fyrri hjá okkur í dag
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
HK vann 5-0 sigur á KFG í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins fyrr í kvöld. Mörk HK skoruðu þeir Atli Þór Jónasson (2), Ívar Orri og Hassan Jalloh (2). Kári Jónasson aðstoðarþjálfari HK kom í viðtal eftir leik.
„Ég er mjög ánægður með þá sem komu og voru að spila sinn fyrsta keppnisleik fyrir HK í dag og ánægður með alla sem tóku þátt í rauninni."

HK skorar snemma en ógna lítið eftir það í fyrri hálfleik

„Klárlega hægt að bæta leik liðsins í fyrri hálfleik. Við fórum vel yfir í hálfleik hvernig við vildum gera það. Það vantaði smá tempó og áræðni í leikinn hjá okkur. Markið kom á góðum tíma fyrir okkur í lok seinni hálfleiks. Mér fannst heilt yfir betri frammistaða í seinni hálfleik frekar en í þeim fyrri hjá okkur í dag."

Ívar Orri Gissurason kom inná og skoraði um leið

„Það er gott að sjá Ívar aftur inn á fótboltavellinum. Hann er leikmaður sem getur nýst okkur mjög vel. Hann er búinn að vera mikið frá vegna meiðsla og lítið með á undirbúningstímabilinu, þetta var mjög sætt í rauninni.''

Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Ívar Orri Gissurason

Ívar Orri Gissurason

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.