Fotbolti.net
02.07.26 - 11:06
Kári Snorrason

Brann búið að ráða eftirmann Freys

Horneland náði góðum árangri með Brann áður en hann fór til Frakklands.

Horneland náði góðum árangri með Brann áður en hann fór til Frakklands.

Canon

Mynd: EPA

Norska félagið Brann hefur ráðið Eirik Horneland sem nýjan þjálfara liðsins. Hann tekur við af Frey Alexanderssyni sem var látinn taka poka sinn í byrjun júní.

Horneland snýr þar með aftur til Brann, en hann stýrði liðinu með góðum árangri áður en hann var ráðinn til franska félagsins St. Etienne síðla árs 2024. Freyr tók við starfinu hjá Brann í upphafi árs 2025 af Horneland.
Hjá Brann spila þeir Kristall Máni Ingason, Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson.

Freyr tók við stórliðinu Rosenborg eftir brottreksturinn frá Brann. Rosenborg er í 15. sæti en Brann er í því ellefta. Norska deildin hefst aftur eftir sumarfrí eftir tíu daga.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.