Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari Þórs á Akureyri, er bjartsýnn á framhaldið þrátt fyrir 2-1 ósigur gegn Þrótturum. Þetta var þriðja tap Þórsara í sumar.
Þór tapaði fyrsta leiknum gegn Fylki 3-1 og þurfti svo að lúta í gras á heimavelli gegn Selfyssingum, 4-1. Það var þó lífi í Þórsurum þrátt fyrir 2-1 tap í dag en andinn virðist í góðu lagi þrátt fyrir þrjá ósigra.
Sigurður Marinó Kristjánsson kom Þór á bragðið undir lok fyrri hálfleiks áður en Víðir Þorvarðarson jafnaði metin. Hlynur Hauksson skoraði svo sigurmarkið undir lok leiks.
„Það er erfitt að segja. Það er svekkjandi að tapa í lokin. Ég var ánægður með mitt lið, þeir stóðu sig vel og í fyrri hálfleik voru þeir betri aðilinn. Í seinni hálfleik slökum við helst of mikið á og gerum einum of mörg mistök og okkur er refsað harkalega fyrir það," sagið Lárus við Fótbolta.net.
Þór tapaði í fyrstu umferð fyrir Fylki 3-1 en í dag mætti allt annað lið til leiks.
„Sá leikur var stórfurðulegur. Við vorum mjög slakir á allan hátt og það var ekki í takt við það sem við vorum að gera í vetur eða það sem við erum búnir að vera að gera síðan. Ég hef mínar tilgátur hvað við vorum að gera þar og við erum búnir að laga það."
„Við fórum svo heim og spiluðum við Selfoss og töpuðum 4-1. Það lítur mjög illa út að tapa 4-1 á heimavelli en sá leikur var í járnum og við fengum helling af færum í þeim leik. Svo var Ægis-fíaskóið en við gerðum allt sem við gátum til að vinna leikinn þar. Við sóttum, sóttum og sóttum en þeir fengu ekki færi fyrr en á lokamínútunni í framlengingunni og núna komum við á erfiðan útivöll. Yfir 90 mínútur vorum við betri en þú færð ekkert fyrir að vera betri."
Lárus segir að margir leikmenn séu að stíga upp. Leikmenn sem voru efnilegir en eru nú komnir yfir það skeið og reynast mikilvægir liðinu.
„Jónas er búinn að standa sig vel og Aron í markinu. Svo eru gömlu kallarnir sem standa sig vel. Það er hundleiðinlegt að standa í þessu, hundleiðinleg vika framundan. Þetta er leiðinlegt að eiga við þetta og sérstaklega í byrjun móts. Þetta er hype-að upp aðeins frekar en í miðju móti. Það sér sem hver vill sjá það að það er ekkert í gangi og enginn að panikka."
Þór setti það sem markmið að vera eitt af nokkrum liðum að koma sér í möguleika á að fara upp um deild en nú er staðan önnur.
„Þessi deild er jöfn. Það eru 6,7 eða 8 lið sem horfa á möguleikana að komast upp. Við erum eitt af þessum liðum, við erum mjög lítinn hóp og máttum við mjög litlu. Við vorum eitthvað af þessum liðum sem ætluðum næstum því mögulega að komast upp en nú er komin önnur staða og við verðum að sjá hvernig líður á sumarið hvernig við getum horft upp."
„Ég held ekki. Auðvitað eru allir fúlir með þetta. Það er ekkert panikk hjá mér og vonandi ekki hjá leikmönnunum. Ef við erum að fara að spila eins og við gerðum á móti Fylki þá væri ég að panikka," sagði hann í lokin.
Athugasemdir





















