Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 20. maí 2021 13:30
Elvar Geir Magnússon
Samningur Aguero við Barcelona klár
Sergio Aguero, sóknarmaður Manchester City.
Sergio Aguero, sóknarmaður Manchester City.
Mynd: Getty Images
Sergio Aguero, sóknarmaður Manchester City, færist nær því að verða leikmaður Barcelona en spænskir fjölmiðlar fullyrða að hann sé búinn að ná samkomulagi um samning.

Argentínska goðsögnin mun yfirgefa Manchester City þegar samningur hans við City rennur út en hann er 32 ára.

Barcelona hefur lagt fram samning sem færir Aguero 4,3 milljónir punda á ári til 2023. Það er 58.3% launalækkun frá launum hans hjá City.

Það hjálpar Barcelona að halda í Lionel Messi að fá Aguero en þeir tveir eru miklir vinir. Samningur Messi er að renna út en forseti félagsins Joan Laporta leggur mikla áherslu á að halda honum.
Athugasemdir
banner
banner
banner