Fotbolti.net
25.10.26 - 22:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Spánn: Mbappe hetjan í El Clasico

Spánn: Mbappe hetjan í El Clasico
Canon

Mynd: EPA

Barcelona 1 - 2 Real Madrid
0-1 Kylian Mbappe ('41 )
1-1 Raphinha ('61 )
1-2 Kylian Mbappe ('87 )
Real Madrid vann gríðarlega mikilvægan sigur á Barcelona á útivelli í spænsku deildinni í kvöld.

Kylian Mbappe kom Real Madrid yfir undir lok fyrri hálfleiks. Yan Diomande átti fyrirgjöf og Gerard Martin ætlaði að hreinsa en skaut í Mbappe og í netið.

Lamine Yamal fékk dauðafæri stuttu síðar en hitti boltann mjög illa og skaut framhjá markinu.

Raphinha tókst að jafna metin fyrir Barcelona með skoti úr teignum þegar um klukkutími var liðin af leiknum. Stuttu síðar varði Andriy Lunin sterkan skalla frá Martin eftir hornspyrnu.

Mbappe reyndist hetja Real Madrid en hann skoraði sigurmarkið undir lokin. Hann skoraði á opið markið eftir sendingu fyrir markið frá Eduardo Camavinga.

Barcelona er á toppnum með 27 stig eftir 10 umferðir en Real Madrid er í 3. sæti með 24 stig.
Spánn: Mbappe hetjan í El Clasico
Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona10+2927
2Atletico Madrid10+1225
3Real Madrid10+1524
4Betis10+220
5Real Sociedad10+119
6Sevilla9-214
7Alaves10+312
8Celta10+312
9Athletic9+312
10Villarreal10+112
11Deportivo10011
12Osasuna9-811
13Racing Santander10-1111
14Levante10-310
15Elche10-310
16Vallecano9-89
17Getafe10-109
18Espanyol10-28
19Valencia10-106
20Malaga10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.