Fotbolti.net
25.10.26 - 17:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Carragher: Þurfa að reka Carrick í kvöld

Carragher: Þurfa að reka Carrick í kvöld
Canon

Mynd: EPA

Það gengur hvorki né rekur hjá Man Utd og það er útliit fyrir að það sé aðeins tímaspursmál hvenær Michael Carrick yfirgefur félagið eftir 3-0 tap gegn Bournemouth í gær.

Jamie Carragher, sérfræðingur á Sky Sports, telur að félagið þurfi að láta Carrick fara strax í kvöld.
„Michael Carrick þarf að vera leystur frá störfum í kvöld. Ekki bara fyrir Manchester United heldur einnig fyrir Michael Carrick," sagði Carragher.

Phil Neville segir að hann hafði tilfiinningu fyrir því að þetta myndi fara svona.

„Carrick er vinsæll. En eigendurnir, íþróttadeildin og leikmennirnir eru ekki vinsælir. Þeir hafa brugðist félaginu illa. Á morgun munu þeir líklega taka ákvörðun sem mun pirra stuðningsmenn Manchester United en hún er líklega nauðsynleg. Félagið er í rugli."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.