25.10.26 - 18:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stefnir allt í að Carrick verði rekinn


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Það er útlit fyrir að Michael Carrick hafi náð botninum eftir að Man Utd tapaði 3-0 gegn Bournemouth í dag. Man Utd er án sigurs í síðustu átta leikjum og er stigi frá fallsæti.
Það kom fram á dögunum að Man Utd væri að skoða í kringum sig og menn á borð við Eddie Howe, Julian Nagelsmann og Antonio Conte kæmu til greina.
Það kom fram á dögunum að Man Utd væri að skoða í kringum sig og menn á borð við Eddie Howe, Julian Nagelsmann og Antonio Conte kæmu til greina.
Sky Sports greinir frá því í kvöld að félagið hafi sett í næsta gír í leitinni að nýjum stjóra og Howe og Nagelsmann væru taldir líklegastir.
Þeir eru báðir á lausu en Howe hætti sem stjóri Newcastle í sumar og þá hætti Nagelsmann sem landsliðsþjálfari Þýskalands eftir mikil vonbrigði á HM í sumar.
Þeir eru báðir á lausu en Howe hætti sem stjóri Newcastle í sumar og þá hætti Nagelsmann sem landsliðsþjálfari Þýskalands eftir mikil vonbrigði á HM í sumar.
