Fotbolti.net
25.10.26 - 15:59
Brynjar Ingi Erluson

England: Varnarleikur Man Utd í molum - Liverpool stöðvaði sigurgöngu Brighton

Það er allt í rugli hjá Man Utd

Það er allt í rugli hjá Man Utd

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick, stjóri Manchester United, gæti hafa stýrt sínum síðasta leik hjá félaginu eftir að liðið tapaði 3-0 fyrir Bournemouth á Old Trafford í dag. Liverpool batt á meðan enda á sigurgöngu Brighton með 2-0 sigri á Anfield.
Carrick gerði djarfar breytingar á byrjunarliðinu og setti meðal annars lykilmennina Bruno Fernandes og Lisandro Martínez á bekkinn.

Breytingarnar skiluðu hins vegar ekki þeim árangri sem Carrick hafði vonast eftir því Rayan kom Bournemouth yfir á 38. mínútu. Justin Kluivert tók langa aukaspyrnu yfir á fjærstöngina þar sem Rayan var aleinn og stýrði boltanum örugglega í nærhornið.

Aðeins fimm mínútum síðar gerði Leny Yoro skelfileg mistök þegar hann tapaði boltanum við eigin vítateig. Adrien Truffert hirti boltann og kom honum á Marcus Tavernier sem tvöfaldaði forystu Bournemouth.

United var því komið í ansi erfiða stöðu og fór tveimur mörkum undir inn í hálfleikinn.

Það sem var slæmt fyrir United varð síðan enn verra í síðari hálfleik. Truffert náði lausum bolta á eigin vallarhelmingi og sendi hann langt fram völlinn þar sem Harry Maguire, Lisandro Martínez og Senne Lammens, markvörður United, voru allir úti að aka.

Lammens taldi sig geta náð boltanum á undan Evanilson og Maguire og Martínez virtust sömuleiðis reikna með því og hlupu frá. Evanilson var hins vegar fyrstur á boltann og skoraði af hægri kantinum í yfirgefið markið.

Varnarleikur United var hreint út sagt agalegur í dag og niðurstaðan 3-0 tap á Old Trafford. United hefur nú ekki unnið í síðustu átta leikjum og situr í 16. sæti með sjö stig, en Bournemouth er í 13. sæti með níu stig.

Fyrsti heimasigur Irola kom gegn sterku liði Brighton

Liverpool vann öflugan 2-0 sigur á Brighton á Anfield, sem var fyrsti heimasigur Andoni Iraola með Liverpool í deildinni.

Leikurinn var fjörugur og opinn frá fyrstu mínútu, en það voru gestirnir sem fengu dauðafæri á 15. mínútu.

Pascal Gross fékk boltann hægra megin í teignum og lagði hann út á Yasin Ayari sem hamraði honum yfir markið úr dauðafæri. Það átti heldur betur eftir að bíta Brighton í rassinn því aðeins tveimur mínútum síðar tók Liverpool forystuna.

Florian Wirtz fékk boltann í teignum og skaut að marki, en boltinn fór í Gross og þaðan í netið. Markið var fyrst skráð á Wirtz en síðar breytt í sjálfsmark þar sem boltinn breytti verulega um stefnu af Gross.

Liverpool hamraði járnið meðan það var heitt og aðeins nokkrum mínútum síðar bætti Alexander Isak við öðru marki. Bradley Barcola fékk boltann í svæði og fór í kapphlaup við Olivier Boscagli sem hann hafði betur í, áður en hann sendi boltann vel fyrir markið á Isak sem afgreiddi hann snyrtilega í fjærhornið.

Ayari átti hörkuskot í stöngina fyrir Brighton og þá kastaði Ronald Araujo sér fyrir boltann með höfðinu til að hreinsa frá eftir mikinn darraðardans í teignum. Araujo er svo sannarlega að vinna hug og hjörtu stuðningsmanna Liverpool með ástríðu sinni og baráttu.

Staðan var 2-0 fyrir Liverpool í hálfleik eftir stórskemmtilegan fyrri hálfleik.

Í síðari hálfleik fengu bæði lið færi til að bæta við mörkum en þau urðu ekki fleiri. Flottur sigur hjá Liverpool sem varð þó fyrir því áfalli að missa Wirtz af velli vegna meiðsla um miðjan síðari hálfleikinn.

Þetta var fyrsta tap Brighton í deildinni síðan liðið tapaði fyrir Chelsea í annarri umferð. Brighton er áfram í þriðja sæti með 16 stig en Liverpool er komið upp í fjórða sætið með 15 stig.

Hull City og Brentford gerðu 1-1 jafntefli á MKM-leikvanginum í Hull. Oli McBurnie kom heimamönnum yfir úr vítaspyrnu á 24. mínútu áður en Dango Ouattara jafnaði metin á 63. mínútu.

Hull situr í tíunda sæti með tíu stig en Brentford er í sjötta sæti með ellefu stig.

Newcastle United vann á meðan góðan 2-0 sigur á Crystal Palace á Selhurst Park. William Osula og Harvey Barnes skoruðu mörkin með ellefu mínútna millibili í upphafi síðari hálfleiks.

Newcastle er þar með komið aftur á sigurbraut og situr nú í sjöunda sæti með ellefu stig, en Palace er í 17. sæti með sjö stig.

Crystal Palace 0 - 2 Newcastle
0-1 William Osula ('47 )
0-2 Harvey Barnes ('58 )

Hull City 1 - 1 Brentford
1-0 Oli McBurnie ('24 , víti)
1-1 Dango Ouattara ('63 )

Liverpool 2 - 0 Brighton
1-0 Pascal Gross ('17 , sjálfsmark)
2-0 Alexander Isak ('21 )

Manchester Utd 0 - 3 Bournemouth
0-1 Rayan ('38 )
0-2 Marcus Tavernier ('43 )
0-3 Evanilson ('71 )
Michael Carrick var líklega að stýra sínum síðasta leik með United

Michael Carrick var líklega að stýra sínum síðasta leik með United

Canon

Mynd: EPA

Barcola og Isak fagna marki sænska framherjans

Barcola og Isak fagna marki sænska framherjans

Canon

Mynd: EPA

Florian Wirtz átti stóran þátt í fyrsta markinu og hefur verið líflegur í síðustu leikjum Liverpool

Florian Wirtz átti stóran þátt í fyrsta markinu og hefur verið líflegur í síðustu leikjum Liverpool

Canon

Mynd: EPA

Osula skoraði í sigri Newcastle

Osula skoraði í sigri Newcastle

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Newcastle8-211
8Aston Villa8-311
9Leeds7+310
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.