25.10.26 - 22:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hinrik lagði upp í mikilli dramatík - Þriðja tapið í röð hjá Brann

Mynd: Egersund

Mynd: EPA

Mynd: Egersund
Hinrik Harðarson kom inn á sem varamaður og lagði upp dramatískt jöfnunarmark í 3-3 jafntefli Egersund gegn Bryne í næst efstu deild í Noregi.
Hinrik kom inn á 70. mínútu í stöðunni 3-2 og lagði upp jöfnunarmarkið á þriðju mínútu í uppbótatíma. Breki Baxter kom inn á undir lokin.

Breki Baldursson var ekki með Asane þegar liðið vann Moss 3-1. Þá var Atli Barkarson ekki með Sogndal í 3-1 sigri á Kongsvinger. Egersund er í 10. sæti með 35 stig eftir 28 umferðir, Sogndal er í 12. sæti með 30 stig og Asane er í 15. sæti með 25 stig.
Sævar Atli Magnússon, Kristall Máni Ingason og Eggert Aron Guðmundsson voru allir í byrjunarliði Brann þegar liðið tapaði 3-2 gegn Lillestrom í efstu deild í Noregi. Kristall lagði upp annað markið en Kjartan Már Kjartansson er fjarverandi.
Brann hefur tapað þremur síðustu deildarleikjum sínum og er í 9. sæti með 29 stig eftir 24 umferðir.
Ólafur Guðmundsson sá rautt spjald í 2-1 tapi Álasund gegn Sarpsborg. Þá var Júlíus Mar Júlíusson ónotaður varamaður í 2-2 jafntefli Kristiansund gegn KFUM Oslo. Álasund er í 14. sæti með 24 stig og Kristiansund er í 15. sæti með 20 stig.
Daníel Leó Grétarsson var í byrjunarliði AGF þegar liðið vann 2-1 sigur á Viborg í dönsku deildinni. Valgeir Lunddal Friðriksson var ónotaður varamaður hjá Viborg. Mikael Neville Anderson og Tómas Óli Kristjánsson eru á meiðslalistanum hjá AGF.
AGF er í 8. sæti með 12 stig eftir 12 umferðir en Viborg er í 3. sæti með 20 stig.
Hörður Björgvin Magnússon var tekinn af velli í hálfleik þegar Atromitos tapaði 3-1 gegn Aris í grísku deildinni. Atromitos er með tvö stig eftir sjö umferðir. Sigurður Bjartur Hallsson kom inn á sem varamaður í markalausu jafntefli AD Meerida gegn CD Coria í spænsku C-deildinni. Merida er í 9. sæti með 13 stig eftir 9 umferðir.
Lúkas Petersson var í marki varaliðs Hoffenheim í 4-1 tapi gegn Mannheim í þýsku C-deildinni. Hoffenheim er í 7. sæti með 16 stig eftir 11 umferðir.