Fotbolti.net
25.10.26 - 09:08
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool vill ekki fá Trent aftur frá Real Madrid - Yoro á förum frá Man Utd?

Liverpool hefur engin áform um að fá Trent aftur

Liverpool hefur engin áform um að fá Trent aftur

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Þá er komið að Powerade-slúðurpakka dagsins þar sem Liverpool kemur töluvert við sögu. Þá er AC Milan sagt hafa mikinn áhuga á varnarmanni Manchester United.
Liverpool og Real Madrid hafa bæði mikinn áhuga á króatíska miðverðinum Luka Vuskovic (19) og vilja fá hann frá Brighton. (Football Insider)

Chelsea, Barcelona og Bayern München hafa einnig augastað á Vuskovic og fylgjast vel með framvindu mála. (Teamtalk)

Liverpool hefur ekki í hyggju að fá Trent Alexander-Arnold (28) aftur til félagsins frá Real Madrid. (Football Insider)

Valencia ætlar að virkja framlengingarákvæði í samningi spænska framherjans David Otorbi (19) vegna áhuga Liverpool. Við það mun riftunarákvæði í samningi hans tvöfaldast og hækka í um 50 milljónir punda. (Tribuna Deportiva)

Newcastle United og Tottenham hafa bæði spurst fyrir um miðjumanninn Ruben Loftus-Cheek (30) og varnarmanninn Fikayo Tomori (28), sem leika með AC Milan á Ítalíu. (Teamtalk)

AC Milan ætlar að reyna að fá franska varnarmanninn Leny Yoro (20) frá Manchester United næsta sumar, en félagið gæti þurft að greiða allt að 42 milljónir punda fyrir hann. (Calciomercato)

Roma hefur mikinn áhuga á Alejandro Balde (23), vinstri bakverði Barcelona, en hann gæti yfirgefið félagið ef hann fær ekki meiri spilatíma. (Il Messaggero)
Yoro til AC Milan?

Yoro til AC Milan?

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.