Fotbolti.net
25.10.26 - 20:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Katla fullkomnaði endurkomuna

Katla fullkomnaði endurkomuna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kvennaboltinn
Katla Tryggvadóttir var hetja Fiorentina í endurkomusigri á Parma í ítölsku deildinni í kvöld.

Parma komst yfir en Fiorentina jafnaði metin úr vítaspyrnu seint í uppbótatíma fyrri hálfleiks. Það var síðan Katla sem tryggði sigurinn snemma í seinni hálfleik.
Katla var í byrjunarliði Fiorentina ásamt Irisi Ómarsdóttir og Birta Georgsdóttir kom inn á hjá Parma þegar rúmlega tíu mínútur voru eftir. Fiorentina er í 4. sæti með 7 stig eftir fjórar umferðir en Parma er í 11. og næst neðsta sæti með eitt stig.

Hildur Antonsdóttir var tekin af velli í hálfleik þegar Newcastle gerði 2-2 jafntefli gegn Nottingham Forest í næst efstu deild á Englandi. Newcastle var tveimur mörkum undir í hálfleik.

Newcastle er á toppnum með 16 stig eftir sex umferðir. Þetta voru fyrstu töpuðu stig liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.