Fotbolti.net
25.10.26 - 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þýskaland: Bayern með öruggan sigur án Kompany

Þýskaland: Bayern með öruggan sigur án Kompany
Canon

Mynd: EPA

Bayern vann Freiburg í þýsku deildinni í dag en Vincent Kompany var fjarverandi og verður það næstu vikurnar eftir að hafa hnigið niður á æfingu í aðdraganda leiksins.

Dayot Upamecano kom Bayern yfir. Hann vann boltann og sendi hann frá sér, Upamecano hélt áfram upp völlinn og var skyndilega kominn einn í gegn og skoraði.
Serge Gnabry bætti öðru markinu við eftir laglegt samspil við Nathaniel Brown. Tom Bischof varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark en Michael Olise innsiglaði sigur Bayern undir lokin.

Bayern er á toppnum með 17 stig eftir sjö umferðir en Freiburg er í 3. sæti með 13 stig.

Hoffenheim vann óvæntan sigur á Leverkusen. Leverkusen er í 4. sæti með 13 stig en Hoffenheim í 10. sæti með níu stig.

Freiburg 1 - 3 Bayern
0-1 Dayot Upamecano ('16 )
0-2 Serge Gnabry ('42 )
0-3 Tom Bischof ('82 , sjálfsmark)
0-4 Michael Olise ('90 )

Hoffenheim 3 - 0 Bayer
1-0 Andrej Kramaric ('79 , víti)
2-0 Alexander Prass ('89 )
3-0 Max Moerstedt ('90 )
Rautt spjald: Alexander Prass, Hoffenheim ('90)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.