25.10.26 - 14:37
Brynjar Ingi Erluson
Geir í Selfoss (Staðfest)

Mynd: Selfoss

Mynd: Selfoss
Varnarmaðurinn Geir Sigurbjörn Ómarsson hefur gengið til liðs við Selfoss frá KFA.
Geir, sem er fæddur árið 2004, er örvfættur miðvörður sem getur einnig leikið sem bakvörður.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann leikið 159 meistaraflokksleiki fyrir KFA, verið fyrirliði liðsins og skorað tólf mörk. Þar af komu fjögur í 2. deildinni í sumar, en hann skoraði meðal annars tvívegis gegn Selfyssingum í fyrstu umferð.
Geir hefur nú samið við Selfoss til næstu tveggja ára, en liðið mun leika í Lengjudeildinni á næsta tímabili eftir að hafa hafnað í öðru sæti 2. deildar í haust.