25.10.26 - 16:23
Brynjar Ingi Erluson
Neville: Þeir hafa brugðist félaginu herfilega

Michael Carrick

Mynd: EPA

Leny Yoro gerði slæm mistök í öðru marki Bournemouth

Mynd: EPA

Michael Carrick

Mynd: EPA
Gary Neville, sparkspekingur hjá Sky Sports, segist finna til með Michael Carrick, stjóra Manchester United, en telur að allir í kringum hann hafi brugðist honum og að félagið eigi nú varla annan kost en að láta hann fara.

TENGT EFNI
England: Varnarleikur Man Utd í molum - Liverpool stöðvaði sigurgöngu Brighton
United bauð upp á enn eina slaka frammistöðuna þegar liðið tapaði 3-0 fyrir Bournemouth í dag.
Varnarleikur United var hreinlega agalegur í öllum þremur mörkunum og nú virðist nánast útilokað að Carrick haldi starfi sínu.
Neville gagnrýndi leikmennina, stjórnarmennina og eigendur félagsins harðlega eftir leikinn og sagði þá hafa brugðist Carrick.
„Þetta mun særa Carrick djúpt. Hann er vinsæll meðal stuðningsmanna, en það sama verður ekki sagt um eigendurna, stjórnarmennina og leikmennina. Þeir hafa brugðist Man Utd herfilega.“
„Stuðningsmenn Man Utd syngja lagið hans Carrick því ég held að þeir viti hvað er í vændum.“
„Á morgun mun félagið líklega taka ákvörðun sem mun fara illa í stuðningsmennina, en þetta er sennilega eitthvað sem verður að gera. Það er allt í rugli hjá félaginu,“ sagði Neville.