Fotbolti.net
25.10.26 - 18:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Vandræði Sunderland halda áfram

England: Vandræði Sunderland halda áfram
Canon

Mynd: EPA

Sunderland 0 - 0 Leeds
Sunderland og Leeds gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Brian Brobbey var nálægt því að koma Sunderland yfir snemma leiks en James Trafford varði vel frá honum. Brobbey komst aftur í færi eftir tæplega hálftíma leik en aftur sá Trafford við honum.

Leeds fékk einnig fína möguleika en það var markalaust í hálfleik.

Leeds vildi fá vítaspyrnu þegar um stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma þegar Dominic Calvert-Lewin féll í teignum en það var ekki talið nóg til að dæma vítaspyrnu.

Leeds sótti hart að marki Sunderland í blálokin. Sean Longstaff átti skot en það var varið af vörninni. Boltinn barst síðan til Noah Okafor en boltinn fór af varnarmanni og framhjá.

Markalaust jafntefli var því niðurstaðan. Leeds er í 7. sæti með 11 stigi eftir átta umferðir. Eftir frábært tímabil í fyrra er Sunderland á botninum með fimm stig.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.