Fotbolti.net
25.10.26 - 15:38
Brynjar Ingi Erluson

Brynjólfur skoraði tvö mörk gegn bróður sínum

Brynjólfur skoraði tvennu gegn NEC

Brynjólfur skoraði tvennu gegn NEC

Canon

Mynd: EPA

Brynjólfur Andersen Willumsson heldur áfram að raða inn mörkunum í Hollandi, en hann skoraði tvennu er Groningen gerði 2-2 jafntefli gegn NEC Nijmegen í dag.
Framherjinn hefur verið sjóðandi heitur á þessari leiktíð og virðist fátt geta stöðvað hann þessa dagana.

Brynjólfur kom Groningen yfir á 11. mínútu og bætti öðru marki við á 34. mínútu.

Hann er þar með kominn með átta mörk í deildinni á tímabilinu og er markahæstur ásamt Soren Tengstedt, leikmanni Go Ahead Eagles.

Brynjólfur fór af velli á 73. mínútu, en þá hafði NEC tekist að jafna metin með tveimur mörkum á tæpum fimmtán mínútum.

Það sem gerði þennan leik sérstaklega áhugaverðan var að Willum Þór, eldri bróðir Brynjólfs, sat á varamannabekk NEC en kom ekki við sögu. Groningen situr í áttunda sæti með 15 stig en NEC er í tólfta sæti með ellefu stig.

Stefán Teitur Þórðarson var í byrjunarliði Hannover sem tapaði 2-0 fyrir Braunschweig í þýsku B-deildinni. Hannover situr í 16. sæti með átta stig.

Davíð Helgi Aronsson var í vörn Lyngby sem tapaði 3-2 fyrir Midtjylland. Daníel Freyr Kristjánsson og William Steindórsson komu báðir inn af bekknum hjá Lyngby, en Ísak Snær Þorvaldsson var ekki með liðinu. Elías Rafn Ólafsson, markvörður Midtjylland, kom heldur ekki við sögu.

Midtjylland er á toppi deildarinnar með 28 stig en Lyngby situr í tólfta sæti með átta stig.

Hjörtur Hermannsson var í vörn Gautaborgar sem gerði 1-1 jafntefli við GAIS í sænsku úrvalsdeildinni. Kolbeinn Þórðarson kom inn af bekknum þegar hálftími var eftir af leiknum. Gautaborg situr í níunda sæti með 37 stig.

Kristófer Jónsson var á miðjunni hjá Reggiana sem tapaði 2-0 fyrir Grosseto í ítölsku C-deildinni. Reggiana er í sjötta sæti með 17 stig.

Amin Cosic fékk þá að spila síðasta stundarfjórðunginn með Noregsmeisturum Viking sem unnu 3-1 sigur á Tromsö. Viking er á toppi deildarinnar með 59 stig, þremur stigum meira en Bodö/Glimt.
Amin Cosic spilaði í sigri Viking

Amin Cosic spilaði í sigri Viking

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.