Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   mið 20. maí 2026 20:56
Ívan Guðjón Baldursson
Evrópudeildin: Fyrsti Evróputitill Aston Villa síðan 1982!
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Freiburg 0 - 3 Aston Villa
0-1 Youri Tielemans ('41)
0-2 Emiliano Buendía ('45+3)
0-3 Morgan Rogers ('58)

Aston Villa er Evrópudeildarmeistari 2026 eftir þægilegan sigur gegn Freiburg í úrslitaleiknum sem fór fram í Istanbúl í kvöld.

Enska úrvalsdeildarliðið var talsvert sterkari aðilinn allan leikinn þar sem Þjóðverjarnir frá Freiburg sáu aldrei til sólar.

Villa skapaði sér ekki mikið af færum en gæðin í liðinu skinu í gegn þegar Youri Tielemans náði forystunni á 41. mínútu og Emiliano Buendía tvöfaldaði hana svo undir lok uppbótartíma fyrri hálfleiks. Þeir skoruðu stórglæsileg mörk til að koma Villa í frábæra stöðu.

   20.05.2026 20:00
Sjáðu mörkin: Algjör draumamörk hjá Aston Villa


Síðari hálfleikurinn hélt áfram í svipuðu fari. Freiburg komst ekkert áleiðis gegn skipulögðu liði Villa sem var áræðið í sóknarleik sínum og innsiglaði Morgan Rogers sigurinn á 58. mínútu.

Rogers skoraði af stuttu færi eftir laglegt hlaup í vítateignum en Buendía skapaði markið með frábærri stoðsendingu.

Villa skapaði sér góðar stöður til að bæta fjórða markinu við en tókst ekki, svo lokatölur urðu 0-3.

Þetta er fyrsti mikilvægi Evróputitill Aston Villa síðan 1982. Freiburg steinlá í sínum fyrsta úrslitaleik í Evrópukeppni.
Slapp
banner
banner