Fotbolti.net
20.06.04 - 07:28

Isaksson til Rennes (Staðfest)

Isaksson til Rennes (Staðfest)
Canon
Sænski markvörðurinn Andreas Isaksson er kominn til Rennes í Frakklandi frá sænska liðinu Djurgarden. Þessi mikils metni markmaður er ætlað að fylla upp í skarðið sem Petr Cech mun skilja eftir sig en hann er að fara til Chelsea.
Isaksson lék áður með Juventus og Rennes hafa fylgst með honum síðan í janúar þegar Cech ákvað að fara. Í fyrstu hafði Isaksson ekki mikinn hug á að fara til Frakklands en svo virðist sem honum hafi snúist hugur. Þessi stóri og stæðilegi markvörður skrifaði undir þriggja ára samning við Rennes en hann er núna á Evrópumótinu með sænska landsliðinu.

Isaksson er aðalmarkmaður sænska landsliðsins á EM og hélt hreinu í 5-0 rústinu gegn Búlgörum í fyrsta leiknum en fékk á sig eitt mark í 1-1 jafnteflinu gegn Ítölum. Hann var valinn besti markvörður Svíþjóðar árið 2003.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.