Fotbolti.net
20.07.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Bergkamp skrifar undir hjá Arsenal. (Staðfest)

Hollendingurinn Dennis Bergkamp hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Arsenal. Um tíma leit út fyrir að samningaviðræður myndu ekki takast en hinn 34 ára sóknarmaður mun vera a.m.k 1 ára í viðbót hjá Arsenal. Bergkamp lofaði allt hjá Arsenal og sagði að þetta væri frábær klúbbur.
Arsene Wenger hrósaði líka Bergkamp en Frakkinn hefur greinilega mjög mikið dálæti á Thierry Henry því að hann sagði "Það er erfitt að sjá hver mun leika frammi með Henry í vetur. Verður það Aliadiere, Wiltord, Jeffers, Bergkamp eða Kanu, við verðum bara að sjá." Sagði Wenger en það eru ekki allir stjórar sem að lofa leikmönnum byrjunarliðssæti í fjölmiðlum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.