Fotbolti.net
20.07.23 - 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Íslenskur miðvörður á leið til AGF - Kári hrósar honum í hástert

Víkingarnir Kári Árnason og Sölvi Geir Ottesen voru báðir frábærir miðverðir á sínum ferli.

Víkingarnir Kári Árnason og Sölvi Geir Ottesen voru báðir frábærir miðverðir á sínum ferli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samkvæmt heimildum Tipsbladet er AGF í Árósum nokkrum smáatriðum frá því að krækja í efnilegan Íslending.
Sá heitir Sölvi Stefánsson og kemur frá AGF frá Víkingum í Reykjavík. Hann er fæddur árið 2007 og er 16 ára gamall. Hann hefur í sumar komið við sögu í einum leik með meistaraflokki Víkinga en það var bikarleikur gegn Magna.

Sölvi er hávaxinn miðvörður sem á að baki átta leiki fyrir U17 landslið Íslands og tvo leiki fyrir U16 landslið Íslands.

„Hann er frábær leikmaður. Hann er ekki bara einn efnilegasti leikmaður okkar, hann er líka einn efnilegasti leikmaður Íslands. Hann getur náð eins langt og hann hefur áhuga á," segir Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, í samtali við Tipsbladet. Kári er fyrrum leikmaður AGF og þekkir vel til félagsins.

Kári bætir svo við: „Hann er 1,95 á hæð og er líka mjög fljótur, sem er sjaldgæft þegar leikmenn eru hávaxnir. Hans helsti styrkleiki er að hann er mjög góður á boltanum. Við breyttum stöðu hans frá miðju í miðvörð fyrir ári síðan og hann hefur verið að standa sig mjög vel síðan. Hann er með rétt hugarfar og ég býst við miklu frá honum."

Kári segir að Sölvi væri að spila fleiri leiki fyrir Víkinga ef liðið væri um miðja deild, hann væri þá að spila flestar mínútur. En Víkingar eru á toppi Bestu deildarinnar. Fljótlega verður Sölvi kynntur til leiks hjá AGF sem er eitt af stærri félögum Danmerkur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.