Fotbolti.net
20.07.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Cucurella ætlar að fá sér húðflúr af De la Fuente - „Er ekki svo ljótur"

Cucurella ætlar að fá sér húðflúr af De la Fuente - „Er ekki svo ljótur"
Canon

Mynd: EPA

Marc Cucurella, landsliðsmaður Spánar, er skrautlegur karakter. Hann lofaði því að fá sér húðflúr af andliti Luis de la Fuente, landsliðsþjálfar Spánar, ef liðið yrði heimsmeistari.

Spánn vann Argentíu í úrslitaleik HM í gær og Cucurella ætlar að standa við stóru orðin.
„Ég þarf að hugsa hvar húðflúrið á að vera. Ég mun hafa það á sjáanlegum stað þar sem fólk mun spyrja út í það. Ég mun hugsa út í það í fluginu á leið heim," sagði Cucurella.

„Ég er of gamall fyrir húðflúr en leikmennirnir mínir eru menn orða sinna og ég veit að hann mun standa við þetta. Hann gerði mistök og verður að standa við þetta, ég er ekki svo ljótur," sagði De la Fuente léttur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.