Fotbolti.net
20.08.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Franski boltinn

Witsel kominn í franska boltann (Staðfest)

Witsel kominn í franska boltann (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Belginn þaulreyndi Axel Witsel er búinn að skrifa undir eins árs samning við franska félagið OGC Nice, með möguleika á auka ári.
Witsel er 37 ára gamall og var meðal bestu leikmanna Girona er liðið féll óvænt úr efstu deild spænska boltans á síðustu leiktíð.

Witsel á 140 landsleiki að baki fyrir Belgíu og var í hópnum sem tók þátt í heimsmeistaramótinu í sumar, þar sem hann kom við sögu í tveimur síðustu leikjunum. Hann fékk að spila síðustu mínúturnar í frábærum sigri gegn heimamönnum í Bandaríkjunum í 32-liða úrslitum og lék svo síðasta hálftímann í naumu tapi gegn Spánverjum, sem stóðu uppi sem sigurvegarar á mótinu.

Hann lék 32 af 38 deildarleikjum Girona á síðustu leiktíð og gengur nú í raðir Nice sem rétt bjargaði sér frá falli úr Ligue 1 í maí.

Nice endaði í þriðja neðsta sæti frönsku deildarinnar og mætti AS Saint-Étienne, sem endaði í þriðja efsta sæti í Ligue 2, í umspilsleik um síðasta lausa sætið í deildinni. Liðin gerðu jafntefli í Saint-Étienne en Nice skóp 4-1 sigur í seinni leiknum á heimavelli.

Witsel hefur komið víða við á ferlinum og var meðal annars leikmaður Borussia Dortmund og Atlético Madrid um hríð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.