Fotbolti.net
20.10.17 - 17:25
Mist Rúnarsdóttir
Skrifar frá: Wiesbaden

Elín: Þetta er mjög stór stund

Auglýsing
Elín Metta var á skotskónum í sigrinum sem fer í sögubækurnar

Elín Metta var á skotskónum í sigrinum sem fer í sögubækurnar

Canon

Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn

Hertz
“Bara geggjuð sko. Get eiginlega ekki lýst því. Þetta er bara snilld,” sagði Elín Metta Jensen, framherji Íslands, um tilfinninguna eftir sögulegan sigur gegn Þýskalandi í undankeppni HM 2019 í dag.
Það er ekki margt stærra en að vinna Þýskaland á útivelli.

“Nei og það er líka langt síðan að íslenska landsliðið vann Þýskaland þannig að þetta er mjög stór stund.\"

Elín Metta var ekki fædd þegar Ísland skoraði síðast mark gegn landsliði Þýskalands!

“Það er ekki leiðinlegt að bæta úr því í dag með þremur mörkum. Það er ágætt.”

“Jú, þær voru sterkar en mér fannst bara baráttan okkar alveg jafna það og mér fannst við bara svara þeim vel inná vellinum. Ég gat ekki fundið fyrir að þær væru eitthvað mikið sterkari, alls ekki,” sagði Elín Metta þegar hún var spurð að því hvernig var að takast á við þessa stóru og líkamlega sterku varnarmenn þýska liðsins.

Nánar er rætt við Elínu í sjónvarpinu hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.