Fotbolti.net
17.07.26 - 23:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Klopp sá sig knúinn til að tjá sig um falsfrétt

Klopp sá sig knúinn til að tjá sig um falsfrétt
Canon

Mynd: EPA

Þjóðverjinn Jurgen Klopp sá sig knúinn til að tjá sig á Instagram síðu sinni eftir að hann var sagður hafa komið landa sínum Thomas Tuchel, landsliðsþjálfara Englands, til varnar.

England tapaði gegn Argentínu í undanúrslitum á HM á dögunum. England komst yfir en Argentína kom til baka eftir að Tuchel hafði gert skiptingar til að verja forskotið.
„Fólk segir alltaf eftir leiki að það sé auðvelt að þjálfa, eins og maður velji bara að sækja eða verjast og ekkert meira. Þetta virkar ekki svona, fótbolti er mun flóknari. Ég er ekki að segja að allar ákvarðanir hafi verið fullkonar. Það er aldrei auðvelt að stjórna leik á þessu stigi," átti Klopp m.a. að hafa sagt.

Klopp sagðist hafa fengið mörg skilaboð frá aðdáendum sem lásu þetta.

„Þetta er ekki satt. Ég hef ekkit alað við neitt síðustu 3-5 daga. Ég mun tala aftur á almannafæri á sunnudaginn á úrslitaleiknum. Þetta er bilaður heimur," sagði Klopp.

„Ekki trúa öllu sem þú lest. Þetta er klárlega rangt í þetta skiptið."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.