Frenkie de Jong fékk svo sannarlega skemmtilega kveðju frá stuðningsmönnum Eibar þegar hann yfirgaf völlinn á 79. mínútu í sigri Barcelona á Eibar í gær.
Stuðningsmenn Eibar hrifust það mikið að þeir gáfu de Jong standandi lófatak þegar hann yfirgaf völlinn.
Stuðningsmenn Eibar hrifust það mikið að þeir gáfu de Jong standandi lófatak þegar hann yfirgaf völlinn.
De Jong þótti fara sérstaklega vel með boltann í leiknum í gær og uppskar þess vegna klappið.
De Jong hefur farið vel af stað hjá Barcelona en hann hefur spilað í öllum leikjum liðsins til þessa. Hann fékk að hvíla síðustu mínúturnar til að verða ferskari þegar Barcelona mætir Slavia Prag á miðvikudag í Meistaradeildinni.
Athugasemdir