Manchester United hefur fengið góðar fréttir því Luke Shaw, Nemanja Matic og Axel Tuanzebe eru allir byrjaðir að æfa á nýjan leik eftir meiðsli.
Shaw hefur verið frá keppni í þrjá mánuði vegna meiðsla aftan í læri en hann meiddist gegn Crystal Palace í ágúst.
Tuanzebe hefur verið frá keppni síðan hann meiddist í upphitun gegn Liverpool í síðasta mánuði. Matic hefur ekkert spilað með Manchester United síðan gegn AZ Alkmaar þann 3. október.

Paul Pogba er ennþá í endurhæfingu vegna ökklameiðsla og þá er stutt í að hægri bakvörðurinn Diogo Dalot verði klár eftir meiðsli.
Ashley Young snýr aftur eftir leikbann þegar Manchester United mætir Sheffield United á sunnudaginn.
Athugasemdir