21.01.04 - 00:00
Reo-Coker til West Ham (Staðfest)




Þessi ungi og efnilegi miðvallarleikmaður er nú á förum frá Wimbledon eftir að hafa komist að samkomulagi við West Ham um persónuleg kjör. Lið á borð við Crystal Palace, Leicester City, Portsmouth, Tottenham Hotspur og Cardiff City voru einnig á höttunum eftir piltnum en West Ham var það eina sem kom til greina að hans sögn. Það eina sem eftir stendur er læknisskoðun sem fer fram seinna í dag og mun Reo-Coker skrifa undir samninginn þegar hún er afstaðin.
