Fotbolti.net
21.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Delibašic til Mallorca (Staðfest)

Delibašic til Mallorca (Staðfest)
Canon
Mallorca hefur keypt sóknarmanninn Andrija Delibašic frá Partizan Belgrad en kaupverðið var ekki gefið upp. Þessi 22 ára sóknarmaður skrifaði undir 5 og hálfs árs samning við Mallorca liðið. Hann hefur skoraði grimmt fyrir Partizan og skoraði meðal annars tvö mörk í þeim fjórum leikjum sem hann lék með liðinu í Meistaradeildinni auk þess sem að hann skoraði tólf mörk á seinustu leiktíð þegar að Partizan vann deildina í Serbíu og Svartfjallalandi.
Hann mun líklega leika sinn fyrsta leik með Mallorca gegn Real Zaragoza á sunnudag enda er Mallorca án framherjans Samuel Eto'o sem er á leið á Afríkumótið með Kamerúnum.

Þar sem að það mega aðeins þrír leikmenn utan Evrópusambandsins leika í einu með hverju liði í La Liga þykir líklegt að Úrúgvæinn, Ricardo Martín Ligüera verði látinn fara frá Mallorca í kjöfar komu Delibasic.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.