Fotbolti.net
21.01.04 - 00:00
Elvar Geir Magnússon

Adriano kominn til Inter (Staðfest)

Adriano kominn til Inter (Staðfest)
Canon
Sóknarmaðurinn Adriano hjá Parma er á leið aftur til Inter en síðarnefnda félagið tilkynnti það opinberlega í dag. Leikmaðurinn hefur verið orðaður við Chelsea af krafti undanfarnar vikur. Þessi hæfileikaríki leikmaður skrifaði undir samning til ársins 2008.
Inter lánar Parma í staðinn leikmennina Isah Eliakwu og Ianis Zicu. Síðasti leikur Adriano fyrir Parma var því bikarleikurinn gegn Lazio í gær sem endaði með jafntefli 1-1 en hann skoraði mark Parma. Hann er 21.árs og spilar líklega á sunnudaginn gegn Modena.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.