Fotbolti.net
21.01.23 - 21:14
Brynjar Ingi Erluson

Hólmbert skoraði fyrir Holsten Kiel - Elías í marki Midtjylland

Hólmbert skoraði í síðasta æfingaleiknum

Hólmbert skoraði í síðasta æfingaleiknum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framherjinn, Hólmbert Aron Friðjónsson, var á skotskónum í 2-1 tapi Holsten Kiel gegn Hannover í síðasta æfingaleik 'litla' undirbúningstímabilsins í Þýskalandi í dag.
Hólmbert er mættur aftur til Kiel eftir að hafa verið á láni hjá norska félaginu Lilleström.

Hann hefur nýtt sínar mínútur vel í þessum mánuði en í dag skoraði hann eina mark liðsins í 2-1 tapinu gegn Hannover. Spilað var 2x60 mínútur og kom mark hans á 98. mínútu.

B-deildin byrjar aftur eftir viku er Holsten mætir Greuther Furth en liðið er í 8. sæti með 25 stig.

Rúnar Þór Sigurgeirsson spilaði sinn fyrsta leik á undirbúningstímabilinu með sænska B-deildarliðinu í Öster í 4-0 sigri á Halmstad. Hann átti góðan leik í vinstri bakverðinum. Alex Þór Hauksson spilaði einnig fyrri hálfleikinn.

Elías Rafn Ólafsson var í marki Midtjylland sem gerði markalaust jafntefli við St. Pauli í æfingaleik í dag, en hann missti sæti sitt á síðasta ári til Jonas Lössl.

Böðvar Böðvarsson var í byrjunarliði Trelleborg sem gerði 1-1 jafntefli við Karlskrona.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.