Fotbolti.net
21.01.23 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Xavi vill fá framherja í stað Depay

Xavi þarf annan framherja í liðið

Xavi þarf annan framherja í liðið

Canon

Mynd: EPA

Xavi, þjálfari Barcelona á Spáni, segir að félagið þurfi framherja í stað Memphis Depay.
Depay skrifaði í gær undir þriggja ára samning við Atlético Madríd en hann kemur inn fyrir Joao Felix sem hélt til Chelsea.

Barcelona þarf nú annan framherja inn í hópinn en óvíst er hvort félagið hafi efni á því í þessum glugga.

„Ég veit ekki ef það koma nýir leikmenn inn í liðið, en nú þegar Memphis Depay er farinn þá held ég að það sé þörf á því að fá framherja. Sjáum til hvort það sé mögulegt en annars munum við spjara okkur,“ sagði Xavi.

Dries Mertens, Roberto Firmino og Luis Muriel eru allir orðaðir við Börsunga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.