Kristján Gauti: Það var hræðilegt að horfa upp á þetta
Auglýsing

Kristján í leik með FH gegn Blikum síðasta sumar

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Kristján Gauti Emilsson, leikmaður FH í Pepsi-deild karla, var auðvitað ánægður með 1-10 sigur liðsins á HK í Lengjubikarnum í kvöld en leikurinn var háður í Kórnum. Kristján gerði þrennu í leiknum.
,,Þetta er mjög stór sigur. Við mættum ákveðnir til leiks og hleyptum þeim aldrei inn í leikinn. Okkur tókst að skora nokkuð snemma og þá brutum við þá niður,\" sagði Kristján Gauti við Fótbolta.net í kvöld.
,,Við vitum alltaf að HK-ingar eru með sterkt lið en við mættum vel stemmdir til leiks og þá getur allt gerst.\"
,,Standið á mér er fínt. Ég er búinn að vera nokkuð laus við meiðslin, hef æft vel og aukalega líka. Það gengur bara vel.\"
Kristján átti í miklum erfiðleikum með að koma boltanum í netið á síðustu leiktíð en undirbúningstímabilið hefur verið honum afar gott til þessa.
,,Ég er kominn með tvær þrennur og það gengur bara vel. Ég held að holan sé mín staða en ég get alveg spilað strikerinn líka en framliggjandi miðjumaður hentar mér betur.\"
Sam Tillen fór af velli þegar tæplega klukkustund var búin af leiknum en tveir sjúkrabílir mættu á svæðið. Tillen brotnaði á fæti en hann mun að öllum líkindum missa af tímabilinu.
,,Það var hræðilegt að horfa upp á þetta og ég veit ekki nákvæmlega hvað gerðist en honum leið alla vega ekki vel. Það var hringt strax á sjúkrabíl og vonandi er allt í lagi með hann, þetta tekur svolítið á að sjá svona en ég vona að það sé allt í lagi með hann,\" sagði hann að lokum.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.