Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 21. mars 2021 16:47
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Kría skoraði fjögur gegn Herði
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Kría 4 - 0 Hörður Í.
1-0 Páll Bjarni Bogason ('39)
2-0 Pétur Már Harðarson ('53)
3-0 Björn Valdimarsson ('74)
4-0 Ástþór Arnórsson ('87)

Leikmenn Kríu skiptu mörkunum bróðurlega á milli sín er þeir lögðu Hörð frá Ísafirði að velli í C-deild Lengjubikarsins í dag.

Páll Bjarni Bogason gerði eina mark fyrri hálfleiksins skömmu fyrir leikhlé og tvöfaldaði Pétur Már Harðarson forystuna svo skömmu eftir leikhléð.

Björn Valdimarsson og Ástþór Arnórsson kláruðu dæmið fyrir Kríu sem er á toppi riðilsins með 7 stig eftir 3 umferðir. Hörður er án stiga eftir tvo leiki.
Athugasemdir
banner
banner