Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. mars 2023 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Crouch um Klopp: Getur gengið að starfi sínu vísu
Mynd: Getty Images

Peter Crouch fyrrum leikmaður Liverpool segir að lausnin fyrir liðið sé alls ekki að reka Jurgen Klopp.


Liverpool hefur ekki sýnt sitt rétta andlit á þessari leiktíð en Didi Hamann fyrrum leikmaður liðsins hefur m.a. sagt að Klopp ætti að vera rekinn.

„Þeir sem vilja ekki hafa hann hjá félaginu eru væntanlega utanbæjarfólk því allir í borginni sem ég tala við gersamlega elska hann. Hann getur gengið að starfi sínu vísu eins lengi og hann vill. Ef einhver getur snúið þessu við er það hann," sagði Crouch í samtali við SPORTbible.

„Þetta er ekki eins slæmt og allir halda fram. Auðvitað hafa þeir ekki verið með sama standard og síðustu ár en ég held að það sé líkamlega ómögulegt með sama liðinu."


Athugasemdir
banner
banner
banner