Zubimendi til Real frekar en Arsenal? - Bundesliga leikmenn á blaði Man Utd - Alvarez ekki til sölu
   fös 21. mars 2025 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Patrick Pedersen framlengir við Val - Ætlar að slá markametið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danska markamaskínan Patrick Pedersen er búinn að framlengja samning sinn við Val en hann hefði orðið samningslaus eftir komandi tímabil. Nýr samningur gildir út árið 2026.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net voru félög í heimalandinu farin að horfa í þann möguleika að fá Patrick í sínar raðir áður en hann framlengdi á Hlíðarenda.

Patrick er framherji sem kom fyrst til Vals árið 2013. Hann lék með liðinu 2013-15, aftur 2017-18, kom í glugganum 2019 og hefur verið síðan. Alls hefur hann skorað 178 mörk í 280 leikjum fyrir Val, þar af 116 mörk í 189 leikjum. Hann er 16 mörkum frá því að verða markahæsti leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi, en Tryggvi Guðmundsson er í dag sá markahæsti.

Úr tilkynningu Vals
Patrick skrifaði undir samninginn á Hlíðarenda í dag og sagðist gríðarlega ánægður.

„Valur er auðvitað minn klúbbur og ég get ekki séð mig spila fyrir neinn annan klúbb,“ sagði Patrick sem verður 34 ára gamall í nóvember.

Samningurinn sem Patrick skrifaði undir í dag er fimmti samningurinn sem hann gerir við okkur í Val enda verið lykilmaður hjá okkur síðustu árin og staðið sig afskaplega vel. Honum vantar nú 16 mörk til þess að vera markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi og hann er meðvitaður um það.

„Markmiðið er auðvitað að slá það met. Við sjáum hvort það gangi ekki örugglega,“ sagði Patrick léttur í bragði.

Patrick Pedersen hefur spilað fyrir val frá því hann var 22 ára gamall.

„Það var auðvitað algjört forgangmál hjá okkur í stjórn að endursemja við Patrick sem er ekki bara besti heldur lang besti framherjinn í deildinni. Það er erfitt að hugsa sér valsliðið án hans og við viljum auðvitað að hann klári sinn feril í Val. Þetta er gleðidagur fyrir allt valsfólk.“
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner