21.05.04 - 14:39
Magnús Már Einarsson
Butelle til Valencia (Staðfest)




Valencia hefur tryggt sér þjónustu Ludovic Butelle sem að er 21 árs markmaður sem að leikur með Metz. Butelle sem að er U-21 árs landsliðsmaður hjá Frökkum mun koma frítt til Valencia í sumar þar sem að samningur hans er að renna út hjá Metz. Kappinn mun skrifa undir fimm ára samning og er honum ætlað að setja pressu á Santiago Canizarez aðalmarkvörð Valencia sem að er orðinn 34 ára en Canizarez á líkt og varamarkvörður Valencia, Andreas Palop eitt ár eftir af samningi sínum.
